Rose ósáttur við skipuleggjendur hátíða

Axl Rose, aðalsprauta Guns N' Roses. stækka

Axl Rose, aðalsprauta Guns N' Roses. AP

Söngvari rokksveitarinnar Guns N' Roses, Axl Rose, segir hljómsveitina hafa átt að spila lengur en hún gerði á Reding- og Leeds-hátíðunum sl. helgi. Hljómsveitin hafi gert samkomulag um það við skipuleggjendur hátíðanna.

Rose tístir um þetta á Twitter og segir einhvern misskilning hafa valdið því að hljómsveitin fékk ekki að leika eins lengi og hún vildi, eða þá að skipuleggjendur hafi skipt um skoðun. Hljómsveitin lék á Leeds-hátíðinni 29. ágúst sl. og furðar Rose sig á ummælum skipuleggjanda hátíðarinnar, Melvin Benn, þess efnis að hljómsveitir haldi því oft fram að þeim hafi verið lofað að spila lengur, þegar komið sé að því að þær fari af sviði.

Guns N' Roses hóf leik klukkustund síðar en dagskrá gerði ráð fyrir á Reading-hátíðinni föstudaginn sl. og fékk að leika hálftíma lengur en til stóð skv. dagskrá.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is