Blair rifinn út

Endurminningar Tony Blair „A Journey“ njóta mikilla vinsælda í bókaverslunum stækka

Endurminningar Tony Blair „A Journey“ njóta mikilla vinsælda í bókaverslunum Reuters

Endurminningar Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hafa heldur betur slegið í gegn í bókaverslunum. Bókin „A Journey“ kom út í gær og muna bóksalar ekki eftir annarri eins sölu á endurminningum. Í verslunum Waterstone hefur engin endurminningabók selst jafn vel í sögunni og hún fór strax í efsta sæti lista Amazon yfir söluhæstu bækurnar.

Mega menn eins og David Beckham og Russell Brand bíta í það súra epli að lesendur virðast hafa mun meiri áhuga á því hvað gerðist í Downingstræti á meðan Blair réð þar ríkjum en á þeirra lífi.

Bókin er þegar komin í tólfta sæti yfir vinsælustu bækurnar í Bandaríkjunum og skipar það níunda í Kanada, samkvæmt frétt BBC.

Hins vegar virðast Frakkar og Þjóðverjar hafa lítinn sem engan áhuga á að lesa lífshlaup forsætisráðherrans fyrrverandi.

Tony Blair dregur upp fremur nöturlega mynd af eftirmanni sínum í endurminningum sem gefnar voru út í gær. Hann segir þar meðal annars að Gordon Brown hafi stundum verið „óþolandi“, hann sé að mörgu leyti vel gefinn en hafi ekki snefil af „tilfinningagreind“.

Í bókinni er fjallað ítarlega um samband þeirra tveggja á árunum 1997 til 2007 þegar Blair var forsætisráðherra og Gordon Brown fjármálaráðherra. Blair lýsir Brown sem „afburðasnjöllum“ fjármálaráðherra en kveðst hafa vitað að stjórn Verkamannaflokksins myndi falla ef langþráður draumur Browns um að verða forsætisráðherra rættist. Hann segir að það hafi verið „nánast ómögulegt“ að koma í veg fyrir að Brown tæki við embættinu vegna sterkrar stöðu hans í Verkamannaflokknum og mikils stuðnings við hann í fjölmiðlunum.

Blair lýsir Brown sem lævísum stjórnmálaref og grunar hann um að hafa staðið á bak við rannsókn á ásökunum um að forystumenn Verkamannaflokksins hafi selt sæti í lávarðadeildinni og veitt auðmönnum orður í staðinn fyrir fjárframlög.

Í bókinni, „kveðst Blair ekki iðrast þeirrar ákvörðunar að Bretar tækju þátt í innrásinni í Írak árið 2003 en hann leggur áherslu á að hann harmi mjög mannfallið í stríðinu. Hann viðurkennir að tímabilið eftir innrásina hafi verið miklu verra en hann hafi búist við. „Eftirköstin voru miklu blóðugri, skelfilegri og hryllilegri en nokkur hefði getað ímyndað sér,“ segir hann. „Ég veit það bara að ég gerði það sem ég taldi rétt,“ segir Blair og hrósar George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrir „pólitískt hugrekki“.

Blair viðurkennir að hann hafi verið háður áfengi um tíma vegna mikils álags, m.a. vegna uppreisnartilrauna stuðningsmanna Browns. Blair kveðst alltaf hafa talið sig hafa „stjórn“ á áfengisdrykkjunni en viðurkennir að hann hafi verið við „ytri mörkin“, drukkið daglega til að geta slakað á og staðist álagið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is