Bubbi hættur á Facebook - bestu statusarnir frá upphafi

Bubbi er fallinn frá þeirri ákvörðun að nota Facebook. stækka

Bubbi er fallinn frá þeirri ákvörðun að nota Facebook. Árni Sæberg

Bubbi Morthens tilkynnti síðastliðinn sunnudag að hann ætlaði að taka sér hlé frá notkun Facebook. Bubbi hefur verið á meðal drjúgustu notenda Facebook hér á landi og hefur hann látið mörg óborganleg gullkorn flakka í stöðuuppfærslum á vegg sínum.

Á sunnudaginn klukkan 15:59 skrifaði hann hins vegar: „ER FARINN Í FÉSBÓKAR PÁSU KVEÐ ALLA MEÐ ÞÖKK FYRIR.“ Ljóst er að mikill söknuður verður eftir Bubba og færslum hans, en óskandi er að aðeins sé um tímabundið hlé að ræða.

Í nýjasta tölublaði Monitor eru teknar saman bestu stöðuuppfærslur Bubba frá upphafi og má sjá þær hér að neðan.

5. apríl 2010 kl. 08:28
Sólin kisti mig í morgun ég tók hana í fangið og hvíslaði pabbi elskar þig hún horfði á mig brúnum augum brosti og sagði at Búið

30. apríl 2010 kl. 10:48
Mold Mold Mold áburður sól sól hjólburur sviti lykt af súrefni Lífið.

8. júní 2010 kl. 07:30
Öllum má vera það ljóst að það er munur á ljósi og ljósi.

10. júní 2010 kl. 21:53
Lífið kom til hans í þessum Fyrsta andardrætti sem skilur á milli?

20. júní 2010 kl. 21:57
Að reina sannfæra mann um að Guð sé ekki til er álíka að Reyna drekka sand.

9. ágúst 2010 kl. 19:36
Standa á bekknum umvafin grænni birtu með heiðina á móti sér heiðinn þakin blómum og berjalyngi áin niðar. Grænblár Þungur straumurinn ber með sér orð frá liðnum tíma og allt er gott.

Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Klám í Köben? myndskeið

monitor klovn
í fyrradag MonitorTV var á Strikinu á dögunum og athugaði í eitt skipti fyrir öll hvernig á að bera fram nafn danska þáttarins Klovn sem hefur valdið fyndnum misskilningi hérlendis undanfarin ár. Meira »

Ástfangin á sviðinu

Ólöf og Víðir taka þátt í söngleiknum Bugsy Malone sem Verzló setur upp.
10.2. Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ. Meira »

Þetta er algjör hvirfilbylur

Elín tekur þátt í að setja Arkadíu á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
í fyrradag Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadíu sem verður frumsýnd á þriðjudaginn. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
9.2. Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

finnur.is