Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 2.9.2010
| 5:30
| Uppfært
9:36
Kutcher sagður halda framhjá Moore
Fimm ára hjónaband Demi Moore og Ashton Kutcher gæti verið í hættu eftir að orðrómur þess efnis fór af stað að Kutcher hefði haldið fram hjá Moore með ljósku á þrítugsaldri. Þetta má lesa hjá slúðurbloggaranum Perezhilton.
Vitni segja að þau hafi séð Kutcher kyssa og strjúka aðlaðandi stúlku nálægt salerni á ítölskum veitingastað í Los Angeles.
„Ashton hélt þessari fallegu stúlku upp við vegginn og var greinilega að kela við hana. Ég fékk áfall við að sjá hann kyssa stúlku sem var augljóslega ekki Demi,“ sagði eitt vitnanna.
Perezhilton segist hafa efasemdir um þennan orðróm enda sé mjög heimskulegt að halda fram hjá konunni sinni meðal almennings.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum









