Kvikmyndaveisla í Feneyjum

Quentin Tarantino er formaður dómnefndar stækka

Quentin Tarantino er formaður dómnefndar Reuters

Kvikmyndahátíðin í Feneyjum hófst með pomp og prakt í gær en opnunarmynd hátíðarinnar var Black Swan, nýjasta kvikmynd Darrens Aronofskys og var þar um heimsfrumsýningu að ræða. Hátíðin stendur yfir í ellefu daga, lýkur 11. september, og verður margt girnilegt á boðstólum fyrir kvikmyndaunnendur, m.a. nýjustu verk leikstjóra á borð við Sofiu Coppola, Somewhere, Julian Schnabel, Miral, og Anh Hung Tran, Norwegian Wood. Seinasta frumsýning hátíðarinnar verður á kvikmynd Julie Taymor, The Tempest.

Í keppninni um bestu mynd hátíðarinnar eru m.a. kvikmyndir eftir myndlistarmanninn og nú leikstjórann Julian Schnabel, Miral, og Potiche eftir Francois Ozon en af myndum utan aðalkeppninnar má nefna A Letter To Elia eftir Martin Scorsese og Machete eftir Robert Rodriguez.

Myndasyrpa: Kvikmyndahátíðin í Feneyjum

Birtingardagur: Fimmtudaginn, 2. september 2010

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is