Um 200 listaverk boðin upp í Fold

Frá gallerí Fold en þar verða boðin upp tæplega 200 verk í næstu viku stækka

Frá gallerí Fold en þar verða boðin upp tæplega 200 verk í næstu viku mbl.is/Golli

Listmunauppboð verður haldið í Galleríi Fold á mánudag og þriðjudag kl. 18 báða dagana. Mikið magn verka eru á uppboðunum en boðin verða upp tæplega 100 verk hvorn dag.

Fjölmörg uppboð hafa verið haldin í Fold það sem af er ári og fleiri hundruð listaverk þar boðin upp. 

Má þar nefna fimm verk eftir Mugg og tvær kolateikningar eftir Alfreð Flóka.
 
Þá verður boðið upp listaverk eftir fransk-rússneska listamanninn Marc Chagall og tvö verk eftir spænska listamanninn Salvador Dali.
 
Ennfremur verða boðin upp verk eftir Jón Stefánsson, Þorvald Skúlason, Jón Engilberts, Jóhannes S. Kjarval, Ásgrím Jónsson auk verka eftir núlifandi listamenn svo sem Kristján Davíðsson, Húbert Nóa, Tryggva Ólafsson, Braga Ásgeirsson og Hafstein Austmann.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is