Zeta-Jones bálreið út í lækna Douglas

Catherine Zeta-Jones stækka

Catherine Zeta-Jones Reuters

Leikkonan Catherine Zeta-Jones er bálreið út í lækna eiginmanns hennar, Michaels Douglas, fyrir að þeir hafi ekki uppgötvað æxli í hálsi hans fyrr. Er þetta í fyrsta skipti sem hún tjáir sig um krabbamein hans.

Michael Douglas hefur tjáð sig nýlega um þá baráttu sem hann stendur nú í við krabbamein í hálsi. Í nýju viðtali við People segir hinn 65 ára óskarsverðlaunahafi að hann sé ákveðinn í að komast yfir veikindin. „Ég mun sigrast á þessu,“ segir Douglas og hefur ekki fleiri orð um það.

Fram kemur að fleiri en einn læknir hafi rannsakað Douglas áður en honum var loks sagt að hann væri með krabbamein sem væri komið á fjórða stig.

Zeta-Jones viðurkennir í viðtali við People að hún sé að reyna að fyrirgefa læknunum að hafa ekki greint særindi Douglas í hálsi rétt til að byrja með.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is