Ekki hrifnir af málverkum Dylans

Vefur danska Ríkislistasafnsins. stækka

Vefur danska Ríkislistasafnsins.

Málverk Bobs Dylans hefðu aldrei verið sýnd í Ríkislistasafninu ef þau hefðu ekki verið máluð af Bob Dylan. Þetta er umsögn danska blaðsins Berlingske Tidende um væntanlega sýningu á myndverkum Dylans í Kaupmannahöfn.  

Sýning á um 48 verkum Dylans verður opnuð í Ríkislistasafninu í Kaupmannahöfn á morgun. Um er að ræða 40 akrílmyndir og átta teikningar úr svonefndri Brasilíuröð, sem Dylan vann sérstaklega fyrir listasafnið, en  Dylan, sem er 68 ára, hefur í vaxandi mæli snúið sér að málaralist á undanförnum árum.

Berlingske segir, að í tónlist sé Bob Dylan einn af meisturum 20. aldarinnar. Öðru gegni um málverk hans og Ríkislistasafnið hafi ekki tekið þau til sýningar vegna þess að þau séu svo góð, heldur vegna þess að Dylan er höfundurinn.

Umfjöllun Berlingske Tidende

Málverk Dylans

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is