Harmi sleginn á öfugum vegarhelmingi
Japanskur karlmaður hefur verið handtekinn eftir ansi skrautlega og hættulega ökuferð. Maðurinn, sem var harmi sleginn eftir að kötturinn hans drapst, ók 90 km langa leið á öfugum vegarhelmingi. Þá ók hann í gegnum fimm vegatálma sem lögreglumenn komu upp í þeim tilgangi að stöðva för hans.
Tsutomu Mizumoto, sem er 31 árs gamall, var handtekinn á miðvikudagsmorgun á eyjunni Hokkaido.
Fram kemur í japönskum fjölmiðlum að kallað hafi verið eftir aðstoð lögreglu um klukkan 5:45 um morguninn þegar það sást til bifreiðar sem ók á röngum vegarhelmingi á hraðbraut skammt frá borginni Otaru. Lögreglan kom auga á bifreiðina skömmu síðar, hóf eftirför og reyndi að fá manninn til að stöðva bílinn.
Mizumoto hlýddi hins vegar ekki fyrirmælum lögreglu og ók áfram. Hann stöðvaði ekki fyrr en eftir að hafa ekið í gegnum fimm vegatálma og í fram hjá einu tollskýli, eða um kl. 7:15 að staðartíma. Var hann þá umsvifalaust handtekinn.
Hann mun hafa tjáð lögreglunni að hann væri leiður yfir dauða kattarins. „Ég vildi gera eitthvað brjálað,“ á Mizumoto að hafa sagt við lögregluna.








