Krókódíla Dundee má snúa aftur heim
Paul Hogan er þekktastur fyrir að leika Krókódíla Dundee. Reuters
Ástralski leikarinn Paul Hogan, sem er þekktastur fyrir að leika ævintýramanninn Krókudíla Dundee, hefur komist að samkomulagi við skattayfirvöld í Ástralíu sem meinuðu honum að fljúga til Bandaríkjanna, þar sem leikarinn býr. Hogan hefur nú fengið leyfi til að snúa til síns heima.
Leikarinn er sakaður um að skulda skattinum milljónir dala. Lögmaður Hogans segir að nú hafi náðst samkomulag við skattayfirvöld.
Hogan, sem er sjötugur, var stefnt af skattinum í síðasta mánuði þegar hann sneri aftur til Sydney til að vera viðstaddur jarðarför móður sinnar.
Fyrr í þessari viku sagði hann í samtali við ástralska fjölmiðla að hann hefði ekki einu sinni efni á að greiða 10% af því sem skattayfirvöld færu fram á.
„Ég hvorki á né hef átt það fé sem fólk heldur að ég eigi,“ segir leikarinn. Talið er að hann skuldi 37,5 milljónir ástralskra dala.
Hann neitar því að hafa komið milljónum dala, sem hann hefur fengið í vegna þeirra kvikmynda sem hann hefur leikið í, fyrir í erlendum skattaskjólum.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









