Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 3.9.2010
| 7:05
Patton í Mission:Impossible 4
Til stendur að gera fjórðu myndina í Mission: Impossible-syrpunni og liggur nú fyrir hvaða leikkona hreppir aðalkvenhlutverkið í henni, Paula Patton. Patton kannast margir við úr kvikmyndinni Precious.
Kvikmyndavefurinn Deadline greinir frá því að Patton muni leika liðsmann í sérsveit aðalsögupersónunnar, Ethans Hunts, sem Tom Cruise hefur túlkað í þremur kvikmyndum. Auk Patton mun leikarinn Jeremy Renner fara með stórt hlutverk í myndinni. Þá munu leikarar úr síðustu mynd, þeir Ving Rhames og Simon Pegg, einnig leika í myndinni. Leikstjóri verður Brad Birt og hefjast tökur fyrir áramót.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









