Veröld/Fólk
| mbl
| 3.9.2010
| 12:00
Skilnaður Cole hjónanna í höfn
Fjögurra ára hjónabandi tónlistarkonunnar Cheryl og knattspyrnumannsins Ashley Cole lauk fyrir dómi í Lundúnum í dag. Sambúð þeirra lauk hins vegar í febrúar eftir að upplýst var um ítrekað framhjáhald eiginmannsins.
Í kjölfarið óskaði Cheryl eftir skilnaði vegna óeðlilegrar hegðunar eiginmannsins. Í dag fengu bráðabirgða skilnað en formleg skjöl fá þau innan örfárra vikna svo lengi sem hvorugt mótmælir gjörningnum. Hvorugt þeirra mætti í réttarsalinn í morgun og tók afgreiðsla málsins eina mínútu og tuttugu sekúndur samkvæmt frétt á Orange-vefnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









