Festist í reykháfi og kafnaði

Lík konu fannst nýverið fast í reykháfi húss elskhuga hennar en hún ætlaði að laumast inn til hans. Konan, Jacquelyn Kotarac, reisti stiga við húsið og klifraði ofan í reykháfinn en talið er að hún hafi kafnað.

Talið er að líkið hafi verið í fast í reykháfinum í þrjá daga áður en það fannst. Konan og maðurinn áttu í stormasömu sambandi og eftir að þau höfðu rifist og hann neitað að hleypa henni inn í húsið brá hún á það ráð að leita annarra inngönguleiða. Á meðan hún var á þakinu brá maðurinn sér burt og varð því ekki var við tilraunir hennar til að komast niður reykháfinn.

Þremur dögum síðar varð kona, sem gætti hússins, vör við ólykt úr eldstæðinu í stofu hússins. Þá seytlaði vökvi niður háfinn. Konan og sonur hennar könnuðu málið og sáu lík konunnar fast um 60 cm ofan við eldstæðisopið.

Það tók slökkviliðsmenn fimm klukkustundir að losa líkið úr háfnum en til að gera það þurfti að taka reykháfinn í sundur. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is