|
Monitor
| mbl
| 5.9.2010
| 1:44
| Uppfært
2:02
Slagsmál í áhorfendastúkunni - myndband
Opna bandaríska meistaramótið í tennis stendur yfir um þessar mundir og þar hafa fleiri en tennisleikararnir verið í sviðsljósinu. Myndband af slagsmálum á milli áhorfenda fer nú eins og eldur í sinu um netið.
Atvikið átti sér stað þegar Novak Djokovic og Philipp Petzschner áttust við. Forsaga málsins er sú að ungi maðurinn, sem sést á myndbandinu, mun hafa hrópað fúkyrði allan leikinn og notað „f-orðið“ ítrekað. Þetta mislíkaði eldri manni og konu, sem sátu nærri, og sjást samskiptin þeirra á milli á myndbandinu.
Þess má til gamans geta að þeir Djokovic og Petzschner höfðu ekki hugmynd um hvað var í gangi uppi í stúku og héldu leiknum ótrauðir áfram. Djokovic fór með sigur af hólmi. Unga manninum, eldri manninum og konunni var hins vegar öllum hent út.









