Ástkona Rooney með þrennu?

Breska slúðurpressan hefur velt sér upp úr máli Rooneys. Hér sést hjákona hans léttklædd. stækka

Breska slúðurpressan hefur velt sér upp úr máli Rooneys. Hér sést hjákona hans léttklædd.

Breska götublaðið The Sun telur sig hafa heimildir fyrir því að Jenny Thompson, gleðikonan sem átti vingott við Wayne Rooney, framherja Manchester United, hafi stært sig af því að hafa selt minnst þremur öðrum leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar blíðu sína. Reynist það rétt gæti málið undið upp á sig.

Hefur blaðið, sem gerir út á slúður og rætnar fyrirsagnir, eftir kunningja Thompson að hún hafi mikið dálæti á leikmönnum úrvalsdeildarinnar.

Er ónafngreindur varnarmaður deildarinnar sagður hafa hrifist af Thompson og loks átt með henni kynmök gegn þóknun.

Að frátöldum munnmökum við annan varnarmann hafi hún notið ásta með þeim þriðja á heimili hans og vildi þá ekki betur til en svo að unnusta viðkomandi knúði dyra. Er varnarmaðurinn sagður hafa hvatt Thompson til að leiða það hjá sér enda væri unnustan lyklalaus.

Segir blaðið Rooney hafa boðið Thompson að hafa við sig mök á heimili sínu er eiginkonan var fjarverandi, að því er slúðurblaðið hefur eftir henni.

Málið þykir mikið hneyksli enda var eiginkona Rooney ólétt á meðan á sambandi hans og Thompson stóð.

Capello, þjálfari enska landsliðsins, og Rooney.

Capello, þjálfari enska landsliðsins, og Rooney. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is