Aumingja Sarkozy

Nicolas Sarkozy stækka

Nicolas Sarkozy Reuters

Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy er nýjasta fórnarlamb prakkara á netinu. Ef slegið er inn „trou du cul" eða rassgat, á Google leitinni þá kemur upp Facebooksíða forsetans. En hann er ekki sá eini sem hefur orðið fyrir barðinu á prökkurum sem leika sér að Google leitarvélinni.

Áður hafði opinber vefur Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, lent í svipuðu. Ef slegin var inn leitin „liar" (lygari)  þá er vísað á vef Blair.

 George W. Bush, fyrrum forseti Bandaríkjanna, hefur heldur ekki sloppið undan áreiti hrekkjalóma. Ef slegið er inn „miserable failure" þá gefur Google upp síðu Bush. Tæknin sem notuð er við þessi prakkarastrik nefnist „Google bombing".

Svo er ekki úr lagi að reyna að slá inn „French military victories" (Hernaðarsigrar Frakka) þá kemur upp svarið: Google getur ekki fundið neina slíka. Áttur þú við ósigra Frakka.

Facebooksíða Sarkozy kemur upp ef leitað er að trou du cul á Google

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is