Hafnaði Rooney

Rooney á ekki sjö dagana sæla þessi dægrin. stækka

Rooney á ekki sjö dagana sæla þessi dægrin. Reuters

Eftir því sem kynlífshneyksli Wayne Rooney, framherja Manchester United, vindur upp á sig berast stöðugt ítarlegri upplýsingar um næturlíf leikmanna liðsins. Blaðakona Daily Mirror fullyrðir að um 100 stúlkum hafi verið boðið á jólaskemmtun með liðinu 2007 er hún hafi hafnað boði Rooney um kynmök.

Meðal leikmanna sem skemmtu sér í góðu yfirlæti í umræddu teiti jólin 2007 í félagsskap fagurra fljóða voru Rooney, Rio Ferdinand, Ryan Giggs, Owen Hargreaves, Gary Neville, Paul Scholes, Carlos Tevez, Edwin Van der Sar, Louis Saha, Nani, Anderson, Wes Brown og Chris Eagles.

Stúlkan, Sarah Tetteh, skrifar fréttir af fræga fólkinu í Daily Mirror en hún segir Rooney hafa farið á fjörurnar við sig í boðinu.

Hann hafi brugðið á leik og leikið popparann Justin Timberlake með þeim orðum að hún gæti í staðinn þóst vera poppsöngkonan Beyonce.

Fullyrðir Sara að Rooney hafi gefið sér þau fyrirmæli að bíða sín á salerni á skemmtistaðnum, boð sem hún hafnað.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is