Íhugar að hætta við áritanir
Fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, íhugar að hætta við að árita endurminningar sína í Lundúnum í vikunni vegna þess að það geti gert það að verkum að mótmælendur muni koma saman við bókabúðina. Á laugardag mótmæltu um 200 manns fyrir utan bókaverslun í Dublin á Írlandi þar sem Blair áritaði endurminningar sínar, A Journey.
„Í hreinskilni sagt þá hef ég vissar efasemdir. Ég vil ekki láta neinn ganga í gegnum þann mikla kostnað og deilur á miðvikudag þegar ég árita þannig að ég er að íhuga málið," sagði Blair í viðtali á ITV1 en stefnt er að því að hann áriti í verslun Waterstone í miðborg Lundúna á miðvikudag.
Fjórir voru handteknir vegna mótmælanna á laugardag en fólkið kastaði eggjum og skóm að ráherranum fyrrverandi. Engum tókst þó að hæfa hann.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









