Leikið á líkamsskannann

stækka

AFP

Bandarískt fyrirtæki hefur fundið upp límmiða úr gúmmíi, sem hægt er að setja á hernaðarlega mikilvæga staði á líkamanum og koma þannig í veg fyrir að starfsmenn flugvallar, sem stjórna líkamsskönnum, geti séð alla leið í gegnum fötin.

Tækið sér í gegnum klæðnað fólks sýnir hvort það sé með eitthvað innanklæða, t.d. vopn eða sprengiefni. Hafa skannar af þessi tagi þegar verið settir upp á mörgum flugvöllum. 

Fyrirtækið  Flying Pasties, eða Fluglummurnar, hefur nú framleitt límmiða úr gúmmíi, sem hægt er að líma á brjóst og nára. Fyrirtækið segir að hægt sé að nota leppana oft og þeir hylji það sem þurfi að hylja.  

Hægt er að kaupa fluglummurnar á netinu og þeir kosta um 1500 krónur settið fyrir konur og 1000 krónur fyrir karla.

Vefur Flying Pasties 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is