Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 7.9.2010
| 13:13
6 milljónir greiddu ranga skatta
Bresk stjórnvöld hófu í dag að tilkynna 6 milljónum manna að þeir hefðu greitt ranga upphæð í tekjuskatt á undanförnum tveimur árum vegna galla í innheimtukerfi.
Um 4,3 milljónir manna hafa greitt of mikinn skatt og eiga von á endurgreiðslu en 1,4 milljónir manna hafa greitt of lítið og eiga því von á frekari skattakröfu, sem nemur 1428 pundum að meðaltali eða um 260 þúsund krónur.
Fyrstu 45 þúsund bréfin voru send út í dag en ljúka á sendingu bréfanna fyrir jól.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








