Forseti FIDE í samskiptum við geimverur

Kirsan Iljumzhinov. stækka

Kirsan Iljumzhinov.

Kirsan Iljumzhinov segist ekki ætla að sækjast eftir endurkjöri sem forseti rússneska lýðveldisins Kalmíjkíu en ætli þess í stað að einbeita sér að starfi sínu sem forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE. Hann hefur meðal annars komist í fréttir fyrir lýsingar á samskiptum sínum við geimverur.  

Iljumzhinov hefur verið forseti Kalmíjkíu í 17 ár en ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri þegar núverandi kjörtímabil rennur út í október. 

Iljumzhinov sagðist í viðtali við fréttastofuna Interfax ætla að víkja til hliðar í samræmi við stefnu Dmitrís Medvedevs, forseta Rússlands, sem vill að skipt verði oftar um leiðtoga í rússneskum lýðveldum og héröðum.

„Ég ætla ekki að yfirgefa Kalmíjkíu og mun halda áfram að vinna til hagsbóta fyrir þjóð mína," bætti hann við.  Iljumzhinov sagðist einnig ætla að reyna að fá Dalai Lama í heimsókn til Elista en búddatrú er ríkjandi trú í lýðveldinu.

Iljumzhinov, sem er 48 ára, hefur látið reisa byggingar, sem hann kallar Skákborgina, í Elistu, höfuðborg Kalmíjkíu en hann hefur verið forseti FIDE frá árinu 1995.

Ársþing FIDE fer fram 29. september í rússnesku borginni Khantí-Mansijsk í Úralfjöllum. Bæði  Iljumzhinov og Anatolí Karpov, fyrrum heimsmeistari í skák, sækjast þar eftir embætti forseta FIDE og báðir segjast þeir njóta stuðnings rússneska skáksambandsins.

Karpov hefur varið miklum tíma að undanförnu til að kynna framboð sitt og hefur ferðast til fjölda  landa til að afla stuðnings, þar á meðal Færeyja. Segist hann vilja færa sönnur á, að Iljumzhinov sé of sérvitur til að geta stýrt alþjóðlegu skákhreyfingunni. 

Báðir hafa þeir  Iljumzhinov  og Karpov opnað vefsíður þar sem þeir ata hvor annan auri.

Iljumzhinov sagði í viðtali, sem birtist í apríl, að geimverur hefðu lent gegnsæju hylki á svölunum á lúxusíbúð sinni í Moskvu. „Ég sat með bók og var að horfa á sjónvarp og var að sofna. Þá fann ég að einhver kallaði á mig," sagði hann. 

Framboð Karpovs sagði, að þessar yfirlýsingar  Iljumzhinovs hefðu skaðað FIDE og skákhreyfingana í heild. „Umheimurinn hló vikum saman að sögum hans um menn í gulum geimbúningum og að auðmýkingu skákheimsins." 

Skáksamband Íslands hefur lýst yfir stuðningi við framboð Karpovs. 
Anatolí Karpov var lengi í hópi fremstu skákmanna heims.

Anatolí Karpov var lengi í hópi fremstu skákmanna heims.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is