Tívolí krefst bóta fyrir klámtengingu

mbl.is/GSH

Skemmtigarðurinn Tívolí í Kaupmannahöfn hefur höfðað skaðabótamál á hendur dönskum klámmyndaframleiðenda fyrir að nota ímynd Tívolí í auglýsingar. Krefst skemmtigarðurinn milljónar danskra króna, jafnvirði um 20 milljóna íslenskra króna, í bætur. 

Málavextir eru raktir í blaðinu Berlingske Tidende í dag. Kvikmyndafélagið Innocent Pictures yfirtók fyrirtækið Sextv.dk, sem sendi út klámmyndir á nóttinni á sjónvarpsstöðinni Kanal  København. Nicolas Barbano, forstjóri kvikmyndafélagsins lét í kjölfarið gera kynningarmynd þar sem gamall slagari, Tivoli Night, hljómaði undir skuggamynd af bæ með stórum skemmtigarði. 

Forsvarsmönnum Tivoli A/S var ekki skemmt en Tívolí telur sig eiga höfundarrétt á orðinu. Sett var lögbann á notkun auglýsingarinnar og Tivoli AS höfðaði síðan mál og krafðist bóta fyrir að ímynd fyrirtækisins væri tengt við klám. Málið vannst í Sø- og Handelsretten og er nú komið fyrir hæstarétt Dana. 

Berlingske segir, að Nicolas Barbano viðurkenni fúslega að áhorfendur muni tengja skuggamyndina í auglýsingunni við Tívolí í Kaupmannahöfn en bera á móti því að hægt sé að eiga einkarétt á allri tengingu við Tívolí eða á orðinu tívolí.  

Þá bendir Barbano í viðtali við Information á tvískinnung Tívolí sem hafi á sínum tíma leyft að hlutar af kvikmyndunum Hopla på sengekanten og I løvens tegn væru teknir upp í Tívolí á áttunda áratug síðustu aldar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is