Api í yfirvigt fer í megrun

Oshine ætlar aldeilis að leggja af. stækka

Oshine ætlar aldeilis að leggja af.

Órangútan í yfirvigt breytir um lífsstíl þar sem hann er orðinn feitasti prímati Bretlands. Oshine fær nú ekkert sælgæti, engar kökur og nóg af hreyfingu. Hinn íturvaxni órangútan vegur um 100 kg sem er ríflega tvisvar sinnum meira en kjörþyngd hennar dýrategundar.

Umsjónarmenn Oshine í garðinum Apaveröld í Dorset segjast nú þurfa að breyta mataræði hennar til að losa hana við bumbuna. Þeir hyggjast ná árangri með því að láta hana borða grænmeti og ávexti eins og aðrir prímatar eiga að venjast.

Oshine var höfð sem gæludýr í Suður-Afríku fyrstu 13 ár ævi sinnar og fitnaði hún þá óhóflega. Starfsmenn Apaveraldar telja það einkum vera vegna mataræðis en einnig álags sem gæludýr þurfa að þola.

Þann 31.ágúst síðastliðinn var henni komið fyrir á Apaveröld og hefur teymið sem sér um Oshine þar reynt að breyta mataræði órangútansins ásamt því að gera umhverfi hennar afslappaðra og minna stressandi.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Fer að dansa ef þetta klikkar

Tekið skal fram að Þormóður er ekki lengst til hægri á myndinni.
25.5. Hljómsveitin Tilbury gaf út sína fyrstu breiðskífu fyrir skemmstu sem ber nafnið Exorcise. Forsprakki hljómsveitarinnar, Þormóður Dagsson, er í viðtali í nýjasta tölublaði Monitor sem kom út í dag. Meira »

Hróaðu þig niður!

Rapparinn Wiz Khalifa treður upp á Hróarskeldu.
25.5. Hróarskelduhátíðin fer fram þann dagana 5.-7. júlí næstkomandi. Ætla má að þar verði mikið um dýrðir en í nýjasta tölublaði Monitor er að finna opnuumfjöllun um hátíðina þar sem heitustu listamenn hátíðarinnar í ár eru teknir fyrir. Meira »

Eurovision keppnin í SingStar myndskeið

EUROVISION SINGSTAR
25.5. Grétar Örvarsson tók fyrst þátt í Eurovision árið 1990 með Stjórninni og söng hið ógleymanlega lag „Eitt lag enn“. Pétur Finnbogason í Bláum Ópal var ekki fæddur þegar Stjórnin náði fjórða sætinu. Þeir tóku þátt í Eurovision-keppni MonitorTV og er lítið hægt annað að segja en sjón er sögu ríkari. Meira »

Ætlar ekki að segja brandara

Matti Matt er spenntur fyrir stigakynnahlutverkinu.
24.5. „Ég hef mestar áhyggjur af því hvað ég er rólegur yfir þessu, en þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka gríðarlega til að gera þetta,“ segir söngvarinn Matthías Matthíasson, betur þekktur sem Matti Matt. Á laugardaginn næstkomandi fellur það í hans hlut að kynna stig íslensku þjóðarinnar fyrir allri Evrópubyggð í beinni sjónvarpsútsendingu. Meira »

finnur.is