Veröld/Fólk
| mbl
| 8.9.2010
| 12:17
| Uppfært
12:56
Caine leikur í framhaldi Leyndardóms Snæfellsjökuls
Breski leikarinn Michael Caine á nú í viðræðum um að leika í Journey 2: The Mysterious Island, sem er framhaldsmynd Journey to the Center of the Earth (Leyndardóma Snæfellsjökuls), sem kom út árið 2008 og skartaði Brendan Fraser og íslensku leikkonunni Anitu Briem í aðalhlutverki.
Brad Peyton mun leikstýra framhaldsmyndinni og er búist við að tökur hefjist í október nk. á Hawaii. Handritið byggir lauslega á sögu Jules Verne um Dularfullu eyjuna.
Hvorki Anita né Fraser munu endurtaka hlutverk sín í framhaldsmyndinni. Hins vegar mun Josh Hutcherson endurtaka leikinn.
Hasarmyndahetjan og glímukappinn Dwayne Johnson mun leika aðalhlutverkið á móti Hutcherson. Myndin fjallar um leit þeirra að afa persónu Hutcherson, en Caine mun leika afann.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin










