Dóttir Marley í marijúana

Bob Marley í ham. stækka

Bob Marley í ham.

Makeda Jahnesta Marley sem er yngsta dóttir reggígoðsins Bob Marley hefur játað að rækta marijúana á heimili sínu í Philadelphia í Bandaríkjunum.

Hin 29 ára gamla Makeda játaði sig seka um að hafa rúmlega 10 marijúana plöntur á heimili sínu. Marley var fyrst handtekin árið 2008 eftir að lögregla kom að henni þar sem hún var að fjarlægja plöntur úr kjallara sínum vegna ábendingar frá nágranna.

Í febrúar síðastliðnum sagðist Makeda hafa þurft að drýgja tekjur sínar mikið í gegnum árin með hinum ýmsu ráðum þar sem hún hafi klárað sjóð sem faðir hennar lét eftir sig.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Fer að dansa ef þetta klikkar

Tekið skal fram að Þormóður er ekki lengst til hægri á myndinni.
25.5. Hljómsveitin Tilbury gaf út sína fyrstu breiðskífu fyrir skemmstu sem ber nafnið Exorcise. Forsprakki hljómsveitarinnar, Þormóður Dagsson, er í viðtali í nýjasta tölublaði Monitor sem kom út í dag. Meira »

Hróaðu þig niður!

Rapparinn Wiz Khalifa treður upp á Hróarskeldu.
25.5. Hróarskelduhátíðin fer fram þann dagana 5.-7. júlí næstkomandi. Ætla má að þar verði mikið um dýrðir en í nýjasta tölublaði Monitor er að finna opnuumfjöllun um hátíðina þar sem heitustu listamenn hátíðarinnar í ár eru teknir fyrir. Meira »

Eurovision keppnin í SingStar myndskeið

EUROVISION SINGSTAR
25.5. Grétar Örvarsson tók fyrst þátt í Eurovision árið 1990 með Stjórninni og söng hið ógleymanlega lag „Eitt lag enn“. Pétur Finnbogason í Bláum Ópal var ekki fæddur þegar Stjórnin náði fjórða sætinu. Þeir tóku þátt í Eurovision-keppni MonitorTV og er lítið hægt annað að segja en sjón er sögu ríkari. Meira »

Ætlar ekki að segja brandara

Matti Matt er spenntur fyrir stigakynnahlutverkinu.
24.5. „Ég hef mestar áhyggjur af því hvað ég er rólegur yfir þessu, en þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka gríðarlega til að gera þetta,“ segir söngvarinn Matthías Matthíasson, betur þekktur sem Matti Matt. Á laugardaginn næstkomandi fellur það í hans hlut að kynna stig íslensku þjóðarinnar fyrir allri Evrópubyggð í beinni sjónvarpsútsendingu. Meira »

finnur.is