Fonda segir frá lýtaaðgerðum

Jane Fonda er glæsileg kona. stækka

Jane Fonda er glæsileg kona.

Jane Fonda ætlar að segja frá öllum sínum lýtaaðgerðum og hvernig það er að eldast í nýrri bók.

Leikkonan og femínistinn segist ekki hafa neitt að fela varðandi ákvarðanir sínar í þessum málum en hún hefur ítrekað lagst undir hnífinn til að láta strekkja húð sína og fela einkenni öldrunar. Fyrst um sinn skammaðist hún sín mikið fyrir að hafa farið í lýtaaðgerðir en vonast nú til að geta miðlað reynslu sinni.

Fonda segir í viðtali við bandaríska fréttaþáttinn Entertainment Tonight að hún hafi nýverið farið í lýtaaðgerðir. „Ég verð að koma hreint fram. Ég er að skrifa bók um það að eldast og ég kemst ekki hjá því að nefna þær aðgerðir sem ég hef farið í til að breyta útliti mínu. Ég vildi ekki hafa poka undir augunum sem létu mig virðast þreytulega svo ég ákvað að láta taka þá,“ segir Fonda en vill þó þakka heilbrigðum lífsstíl og góðum genum fyrir útlit sitt fremur en lýtaaðgerðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Klám í Köben? myndskeið

monitor klovn
10.2. MonitorTV var á Strikinu á dögunum og athugaði í eitt skipti fyrir öll hvernig á að bera fram nafn danska þáttarins Klovn sem hefur valdið fyndnum misskilningi hérlendis undanfarin ár. Meira »

Ástfangin á sviðinu

Ólöf og Víðir taka þátt í söngleiknum Bugsy Malone sem Verzló setur upp.
10.2. Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ. Meira »

Þetta er algjör hvirfilbylur

Elín tekur þátt í að setja Arkadíu á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
10.2. Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadíu sem verður frumsýnd á þriðjudaginn. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
9.2. Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

finnur.is