Hannar þunglynd leikföng

Bangsi sem þarf að bjarga. stækka

Bangsi sem þarf að bjarga.

Þýskur leikfangasmiður hóf nýverið framleiðslu á leikfangadýrum með geðræn vandamál. Leikföngin eru til dæmis þunglynda skjaldbakan Dub, vatnsfælni krókódíllinn Croco, ímyndunarveiki snákurinn Sly og kindin Dolly sem er með persónuleikaröskun.

Leikföngin eru framleidd af hinum 36 ára gamla Martin Kittsteiner frá Hamborg í Þýskalandi. „Þetta byrjaði allt sem hálfgert grín milli mín og kærustunnar minnar,“ segir Martin en hann segir þau seinna hafa áttað sig á hversu góð hugmyndin væri.

„Börn og fullorðnir kunna að meta hversu berskjölduð leikföngin eru og finnst gefandi að reyna að hjálpa þeim. Ég held að sumu fullorðnu fólki finnist leikföngin virka sem meðferð við þeirra eigin vandamálum,“ segir Martin sem hefur fulla trú á hönnun sinni sem meðferðartæki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Klám í Köben? myndskeið

monitor klovn
10.2. MonitorTV var á Strikinu á dögunum og athugaði í eitt skipti fyrir öll hvernig á að bera fram nafn danska þáttarins Klovn sem hefur valdið fyndnum misskilningi hérlendis undanfarin ár. Meira »

Ástfangin á sviðinu

Ólöf og Víðir taka þátt í söngleiknum Bugsy Malone sem Verzló setur upp.
10.2. Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ. Meira »

Þetta er algjör hvirfilbylur

Elín tekur þátt í að setja Arkadíu á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
10.2. Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadíu sem verður frumsýnd á þriðjudaginn. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
9.2. Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

finnur.is