Konur vilja góða dansara

Þessi dansari er með taktana á hreinu. stækka

Þessi dansari er með taktana á hreinu. Reuters

Nýjustu rannsóknir frá háskólanum í Northumbria sýna að taktar karlmanna á dansgólfinu gefa í skyn hvort þeir séu ákjósanlegir makar.

Til að framkvæma rannsóknina tóku vísindamennirnir 19 menn upp á myndband þar sem þeir dönsuðu frá sér allt vit og endursköpuðu svo hreyfingar þeirra í tölvu.

Eftir að hafa gert kynlausar tölvuverur úr mönnunum létu vísindamennirnir 35 konur horfa á dansana. Þær voru svo beðnar um að gefa einkunn eftir því hvaða hreyfingar heilluðu þær mest og hvaða hreyfingar væru kynþokkafyllstar. Einnig voru valdar verstu og minnst aðlaðandi danshreyfingarnar.

Einn vísindamannanna segir skýran mun koma fram hverjir eru góðir og lélegir dansarar og konur virðast vera mjög sammála um muninn. Hann heldur því einnig fram að lélegir dansarar geti reynt að herma eftir hreyfingum góðra dansara til að bæta sig en segist þó ekki taka ábyrgð á árangrinum.

Hægt er sjá myndbönd af góðum og lélegum dönsurum á vefsíðu háskólans.

Til að sjá myndband af góðum dansara smellið hér.

Til að sjá myndband af lélegum dansara smellið hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Klám í Köben? myndskeið

monitor klovn
10.2. MonitorTV var á Strikinu á dögunum og athugaði í eitt skipti fyrir öll hvernig á að bera fram nafn danska þáttarins Klovn sem hefur valdið fyndnum misskilningi hérlendis undanfarin ár. Meira »

Ástfangin á sviðinu

Ólöf og Víðir taka þátt í söngleiknum Bugsy Malone sem Verzló setur upp.
10.2. Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ. Meira »

Þetta er algjör hvirfilbylur

Elín tekur þátt í að setja Arkadíu á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
10.2. Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadíu sem verður frumsýnd á þriðjudaginn. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
9.2. Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

finnur.is