Lohan þarf spark í afturendann

Lindsay Lohan þyrfti að snúa við blaðinu. stækka

Lindsay Lohan þyrfti að snúa við blaðinu. Reuters

Karldívan J. Alexander úr þáttunum America's Next Top Model lét hafa eftir sér í nýlegu viðtali að Lindsay Lohan þyrfti að fá spark í afturendann og taka sig á.

„Hún þarf hreinar buxur og almennilegt bað. Allir eru að hugsa það sama. Einhver þarf að spyrja stelpuna hvað hún sé eiginlega að gera,“ segir tískugoðið og bætir við að gera þyrfti Lindsay upp eins og gamlan sófa og senda hana í meðferð.

Vonandi sér fyrir endann á óförum hennar en Lindsay hefur á undanförnum árum hagað sér mjög ósiðsamlega og farið í ótal meðferðir við hinum ýmsu fíknum. Hún hefur einnig verið handtekin fyrir ölvunarakstur og önnur athæfi.

Nú virðist sem leikkonan hafi áttað sig á alvarleika mála. Í nýlegu viðtali við Vanity Fair segir leikkonan að vandamál hennar stafi flest af miklu álagi í kringum kvikmyndabransann og frægðina. Hún kveðst vilja snúa blaðinu við. „Ég er mjög góð leikkona, ég veit það alveg. Núna þarf ég að ná ferlinum mínum aftur þó það þýði að ég geti ekki lengur stundað klúbbana. Ég vil öðlast virðingu aftur,“ segir Lindsay.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Klám í Köben? myndskeið

monitor klovn
10.2. MonitorTV var á Strikinu á dögunum og athugaði í eitt skipti fyrir öll hvernig á að bera fram nafn danska þáttarins Klovn sem hefur valdið fyndnum misskilningi hérlendis undanfarin ár. Meira »

Ástfangin á sviðinu

Ólöf og Víðir taka þátt í söngleiknum Bugsy Malone sem Verzló setur upp.
10.2. Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ. Meira »

Þetta er algjör hvirfilbylur

Elín tekur þátt í að setja Arkadíu á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
10.2. Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadíu sem verður frumsýnd á þriðjudaginn. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
9.2. Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

finnur.is