Lykillinn að velgengni Beckham
Tískuvikan í New York, New York Fashion Week, hefst á morgun og verður Victoria Beckham m.a. í brennidepli með fatalínu sína en breska tískuráðið, British Fashion Council, útnefndi línu hennar í ár fatalínu ársins.
Beckham, jafnan nefnd „Posh“ eftir velgengni sína í stúlknasveitinni Spice Girls, er til umfjöllunar í nýjasta sunnudagsblaði dagblaðsins The New York Times og er m.a. spurð að því í viðtali hvert leyndarmálið sé að baki velgengni hennar í tískubransanum. „Ég geri ekkert af hálfum hug,“ svarar hún. „Ef þú hyggst gera eitthvað, gerðu það þá almennilega,“ segir hún og svarar þar með hver lykillinn að velgengninni sé. „Annars er enginn tilgangur með því að gera eitthvað yfirleitt.“
Kjólar Beckham hafa notið mikillar eftirspurnar og hafa kvikmyndastjörnur á borð við Cameron Diaz kosið að klæðast þeim. Þá hefur tónlistarmaðurinn og leikkonan Jennifer Lopez einnig flíkað þeim flíkum.
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









