Veröld/Fólk
| mbl
| 8.9.2010
| 17:54
Piers Morgan tekur við af Larry King
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN staðfesti í dag, að breski sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan verði með spjall- og viðtalaþátt á besta útsendingartíma og taki þannig við Larry King, sem stýrt hefur slíkum þætti á CNN í aldarfjórðung.
Morgan, sem er 45 ára, hefur m.a. verið dómari í bandarísku sjónvarpsþáttunum Americ's Got Talent, og hefur einnig stýrt þáttum í bresku sjónvarpi. Þá var hann ritstjóri bresku götusölublaðanna News of the World og Daily Mirror um tíma.
Larry King tilkynnti í sumar, að hann ætlaði að draga sig í hlé en hann hefur stýrt þættinum Larry King Live frá árinu 1985.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









