Sir Paul og Oprah heiðruð

Paul McCartney er þakklátur. stækka

Paul McCartney er þakklátur. Reuters

Kennedy listamiðstöðin í Washington hyggst heiðra Bítilinn Sir Paul McCartney í Hvíta húsinu í desember. Auk hans stendur til að heiðra bandaríska spjallþáttastjórnandan Opruh Winfrey, danshöfundinn Bill T. Jones, tónskáldið Jerry Harman og kántrístjörnuna Merle Haggard.

Þau munu fá afhent heiðursverðlaun við kvöldverð í boði bandarískra stjórnvalda 4. desember nk. Daginn eftir munu þau svo koma fram á hátíðardansleik.

Kennedy listamiðstöðin veitir árlega heiðursverðlaun til listafólks sem hefur sett mark sitt á bandarísk menningarlíf.

Stjórnarformaður stofnunarinnar, David M. Rubenstein, segir að verðlaunahafarnir hafi varið lífi sínu í að auðga menningarlífið og veita fólki innblástur, bæði í Bandaríkjunum og í heiminum.

Hann bætir því við að McCartney sé einn áhrifamesti og farsælasti lagahöfundur og tónlistarmaður allra tíma.

„Kennedy forseti var svo mikil táknmynd í okkar huga á sjöunda áratugnum og forsetatíð hans veitti svo mörgum mikinn innblástur. Það er því afar ánægjulegt fyrir þennan strák frá Liverpool að verða þessa heiðurs aðnjótandi,“ segir McCartney í yfirlýsingu.

Oprah Winfrey nýtur mikilla vinsælda.

Oprah Winfrey nýtur mikilla vinsælda. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is