Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 8.9.2010
| 6:30
| Uppfært
7:19
Syngur um Sean Penn að taka kókaín í nefið á Haítí
Söngvarinn Wyclef Jean fór ekki fögrum orðum um leikarann Sean Penn á tónleikum sínum um helgina, en þar bendlaði hann leikarann við eiturlyfjanotkun.
Jean og Penn hafa eldað grátt silfur undanfarið, en deilur þeirra hófust er Penn sagði Jean ekki vera efni í forseta Haítí þar sem hann hefði ekki verið sjáanlegur á hjálparsvæðunum þar í landi. Í kjölfarið á þessum illyrðum söng Jean skilaboð til leikarans við lagið „President“ á fyrrnefndum tónleikum.
„Ég er með skilaboð til Seans Penns. Kannski sá hann mig ekki á Haítí þar sem hann var of upptekinn við að sjúga kókaín upp í nefið.“ Fyrir þetta uppskar Jean mikil hlátrasköll tónleikagesta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









