Penélope Cruz með barni

Spænsku leikarahjónin Penélope Cruz og Javier Bardem eiga nú von á sínu fyrsta barni. Turtildúfunar giftu sig fyrr í sumar á Bahamas-eyjum en þau hafa verið saman í þrjú ár.

Fjölmiðlar vestanhafs hafa verið að velta fyrir sér hvort Cruz sé ólétt undanfarnar vikur og nú er komið í ljós að hún er gengin fjóra mánuði á leið.

Cruz og Bardem hafa ekki verið mikið í sviðsljósinu með samband sitt en þau byrjuðu að stinga saman nefjum við tökur á myndinni Vicky Christina Barcelona árið 2007.

Bardem játaði eftirminnilega ást sína á Cruz er hann tók við verðlaunum sem besti leikarinn á Cannes kvikmyndahátíðinni fyrr á árinu. Bæði hafa þau hlotið Óskarsverðlaun fyrir leik sinn. Bardem fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni No Country for Old Men og Cruz fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Vicky Christina Barcelona.

Hjónakornin hafa verið vinir í nærri 20 ár en þau kynntust fyrst við tökur á spænsku kvikmyndinni Jamon Jamon þegar Cruz var aðeins 19 ára gömul.

Javier Bardem og Penélope Cruz eiga von á barni saman.
Javier Bardem og Penélope Cruz eiga von á barni saman. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson