Barn umskorið fyrir misskilning

Börn á fæðingardeild

Börn á fæðingardeild AP

Bandarísk kona, Vera Delgado, hefur höfðað mál á hendur sjúkrahúsi þar sem læknir á sjúkrahúsinu umskar son hennar fyrir mistök. Sonur Delgado, Mario Viera, var umskorinn átta daga gamall á South Miami sjúkrahúsinu án hennar vitundar.

Delgado segir í viðtali við Miami Herald að það sé algjörlega óskiljanlegt hvernig þetta hafi getað gerst. „Ég vildi ekki að þetta yrði gert. Ég er á móti umskurn. Þeir eiga engan rétt á að gera þetta," segir Delgado en Mario var á vökudeild eftir fæðinguna vegna sýkingar.

Þegar móðir hans kom að heimsækja hann einn daginn þá sér hún að það er lyfjaglas við hliðina á rúmi drengsins.  Þegar hún spurði út í lyfið þá sagði hjúkrunarfræðingur henni að þetta væri verkjalyf sem hann fengi eftir umskurnina.

 Stjórn sjúkrahússins hefur beðist afsökunar á mistökunum og segir að gripið hafi verið til aðgerða svo þetta endurtaki sig ekki. 

Umskurn barnsins voru óheppileg mistök sem eru tilkomin vegna þess að skilaboð voru túlkuð rangt. Um leið og mistökin uppgötvuðust lét læknirinn og hjúkrunarfræðingur fjölskyldu vita hvað hafði gerst. 

En Delgado er ekki sátt. Hún hefur höfðað mál gegn sjúkrahúsinu og kært lækninn til lögreglu fyrir árás. „Þetta er stórmál. Í framtíðinni mun hann spyrja hvers vegna hann er ekki eins og pabbi sinn."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
21.2. Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Orsök fjárhagsáhyggna fundin

Teikning af heila
21.2. Vísindamenn hafa uppgötvað að tiltekið efni í heilanum hefur þýðingarmikil áhrif á hvort fólk geti einfaldlega lagt sársauka vegna fjárhagslegra áfalla til hliðar eða ekki. Meira »

finnur.is