Vinir hittast og mynda tengsl
Mentorverkefnið vinátta er samfélagsverkefni og er rekið af Velferðarsjóði barna. Eitt meginmarkmið þess er að háskóla- og framhaldsskólanemendur vinni að velferð barna og öðlist víðtæka reynslu í samskiptum við börn.
Skólaárið 2010-2011 eru mentorpörin um 107 talsins (alls 215 einstaklingar) og koma úr framhaldsskólum, háskólum og grunnskólum í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Borgarnesi, Egilsstöðum og Akureyri.
Upphafsdagurinn er skemmtilegur dagur þar sem að mentorpörin hittast í fyrsta sinn og í framhaldi af því koma þau til með að hittast einu sinni í viku yfir heilt skólaár og gera margt skemmtilegt saman, segir í tilkynningu.
Mentorverkefnið Vinátta hófst árið 2001 og hefur Velferðarsjóður barna á Íslandi rekið það frá upphafi. Velferðarsjóður barna var stofnaður árið 2000 af Íslenskri erfðargreiningu og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Markmið sjóðsins er að hlúa að hagsmunamálum og velferð barna á Íslandi. Stofnandi mentorverkefnisins Vináttu á Íslandi er Valgerður Ólafsdóttir, sálfræðingur. Mentorverkefnið Vinátta hófst sem þriggja ára tilrauna- og þróunarverkefni í samvinnu við Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og tvo grunnskóla í Reykjavík.
Frá ári til árs hefur þátttökuskólum fjölgað. Skólaárið 2010-2011 eru þátttökuskólarnir 24 talsins.
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen










