Kolkrabbinn Páll, sem varð heimsfrægur eftir að hann spáði rétt um ýmsa leiki á HM í knattspyrnu í sumar, er dauður. Sædýrasafnið þar sem hann bjó í Þýskalandi tilkynnti þetta fyrir skömmu.
Páll reyndist sannspár þegar hann spáði spænskum sigri í viðureign Þjóðverja og Spánverja í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í sumar. Þýska þjóðin snérist hins vegar gegn Páli eftir spádóminn og vildu sumir að kolkrabbanum yrði breytt í sjávarréttasalat.
Páll, sem varð tveggja ára, bjó í sædýrasafni í þýsku borginni Oberhausen. Starfsmenn sædýrsafnsins tóku upp á því árið 2008 að láta Pál velja sér skel úr tveimur kössum, sem merktir voru Þýskalandi og andstæðingum í væntanlegum landsleikjum. Fullyrt er að Páll hafi spáð rétt fyrir um úrslitin í öll skipti nema eitt, þegar Þjóðverjar og Spánverjar mættust á Evrópumótinu árið 2008. Þá fékk hann sér skel úr glerkassanum, sem merktur var Þýskalandi en Spánn vann.
Páll spáði rétt fyrir um alla leiki Þjóðverja á HM og því brá Þjóðverjum í brún þegar hann valdi kassann með spænska fánanum. Að sögn blaðsins Der Western sl. sumar fylltust Facebook- og Twitter-síður af ummælum sem lýstu vandlætingu á Páli og lögðu sumir til að kolkrabbinn yrði steiktur, grillaður eða breytt í sjávarréttasalat eða paellu. Aðrir vildu henda honum í hákarlabúrið.