Parísardama lokuð inni á salerni í þrjár vikur

Konan var lokuð inni á baðherberginu í þrjár vikur stækka

Konan var lokuð inni á baðherberginu í þrjár vikur mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Franskri konu var bjargað nær dauða en lífi í vikunni eftir að hún fannst meðvitundarlítil inni á baðherbergi í íbúð sinni í París. Hafði konan, sem er 69 ára gömul, orðið fyrir því óhappi að læsast inni á baðherberginu þann 1. nóvember. Þrátt fyrir að hún hafi barið í veggi baðbergisins með skóm sínum dögum saman varð enginn hennar var.

Greint er frá þessu í breska dagblaðinu Daily Mirror í dag. 

Konan hélt lífi með því að drekka vatn úr krananum og geðheilsunni með því að fara reglulega í sturtu og bursta í sér tennurnar, samkvæmt frásögn Mirror.

Nágrannar konunnar höfðu í vikunni samband við lögreglu þar sem þeir höfðu hvorki séð konuna né heyrt í henni í þrjár vikur. Konan var vannærð er hún fannst en heil heilsu að öðru leyti. Er hún að jafna sig á sjúkrahúsi, segir lögregla. „Hún er mjög vinsæl kona en heldur sínu einkalífi út af fyrir sig og því töldu allir að hún væri í orlofi."

Lögreglan segir að eftir að hafa barið á baðherbergisdyrnar þá hafi heyrst í konunni að hún væri lokuð inni og bað hún þá um að bjarga sér út.

Vinur konunnar, sem býr í Epinay-sous-Senart  í París segir að litlu hefði mátt muna varðandi björgun konunnar en enginn gluggi var á baðherberginu og því ekkert sem hún gat gert annað en að berja veggi baðherbergisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is