Veröld/Fólk
| mbl
| 23.12.2010
| 7:10
Gangbrautin yfir Abbey Road friðuð
Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að friða gangbrautina utan við Abbey Road hljóðverið í norðurhluta Lundúna þar sem Bítlarnir tóku upp flestar plötur sína. Mynd af Bítlunum að ganga yfir gangbrautina er á umslagi plötunnar Abbey Road sem kom út árið 1969.
Þótt rúmir fjórir áratugir séu liðnir frá því þessi sögufræga mynd var tekin koma ferðamenn enn í hópum að gangbrautinni og láta taka af sér myndir að ganga yfir.
Friðunin felur í sér, að gangbrautin er skilgreind sem hluti af breskum menningararfi og ekki má breyta henni.
„Þetta hefur verið gott ár fyrir mig og Bítlana," sagði Paul McCartney. „Það er bara punkturinn yfir i-ið að búið er að friða gangbrautina."
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen









