Britney skaust beint á toppinn

Britney Spears nýtur enn mikilla vinsælda. stækka

Britney Spears nýtur enn mikilla vinsælda. Reuters

Nýjasti smellur poppstjörnunnar Britney Spears rauk beint í efsta sæti á Hot 100 lista Billboards í Bandaríkjunum. Þar með er hún aðeins annar listamaðurinn í 52 ára sögu listans sem hefur komið fleiri en einu lagi á toppinn fyrstu vikuna.

„Hold It Against Me“ trónir nú á toppi listans og árið 2009 var það lagið „3“ tyllti sér í toppsætið fyrstu vikuna.

Mariah Carey er eini listamaðurinn fyrir utan Spears sem hefur náð þessum árangri. Árið 1995 kom hún lögunum „Fantasy“ og „One Sweet Day“ beint á toppinn og árið 1997 var það lagið „Honey“ sem gerði slíkt hið sama.

Að sögn Nielsen SoundScan var lagið halað 411.000 sinnum niður gegn greiðslu. Ekki hafa jafn mörg eintök af lagi tónlistarkonu selst í einu fyrstu vikuna. Gamla metið átti Tayler Swift, en í febrúar sl. seldi hún 325.000 eintök af laginu „Today Was a Fairytale“.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

Hvað á litla prinsessan að heita?

Daníel Svíaprins sýnir hér stærð nýfæddrar dóttur sinnar á Karólínska sjúkrahúsinu í morgun.
08:50 Svíar eru þegar farnir að velta fyrir sér nafni á nýfæddu prinsessuna, en í nótt fæddist Viktoríu krónprinsessu og Daníel eiginmanni hennar dóttir. Sænski veðbankinn Paf telur mestar líkur á að hún muni fá nafnið Alicia. Meira »

Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman

Rihanna.
09:46 Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru. Meira »

Svíaprinsessa er fædd

Hjónin Viktoría og Daniel.
06:23 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur um klukkan hálf fimm í morgun. Litla stúlkan, sem síðar meir mun sitja á valdastóli í Svíþjóð, fæddist á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og var 51 sentímetrar og tæp 3,3 kíló. Faðirinn, Daníel Westling, segir móður og barni heilsast vel. Meira »

finnur.is