Óheppnasti maður veraldar verður fyrir eldingu

Elding. Mynd úr safni. stækka

Elding. Mynd úr safni. Reuters

Bandaríkjamaðurinn John Wade Agan, sem sjálfur telur sig geta verið óheppnasta mann veraldar, liggur á sjúkrahúsi í Tampa eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Raunar hafa efasemdaraddir heyrst um meinta óheppni Agan og er því ekki staðfest að um eldingu hafi verið að ræða.

Fyrir fjórum árum síðan tilkynnti Agan lögreglu að hann hefði verið rændur í leigubíl sínum, hann laminn og á endanum troðið í farangursrými bílsins. Fyrir þremur árum ók hann að slökkvistöð með stóran eldhúshníf í brjóstkassanum. Og fyrir tveimur árum sagðist Agan hafa verið bitinn af tveimur snákum á sama tíma. Það var þá sem menn fóru að efast um sannsögli Agans.

Sjálfur segir Agan sem er 47 ára að honum standi á  sama hvað aðrir segja, en meðal þess er að hann skaði sjálfan sig til að fá sterk verkalyf. Staðreyndin er sú að erfitt er að staðfesta hvort hann sé að segja satt eða ekki. Hvort sem er ætlar Agan að sækja eftir styrk frá yfirvöldum til að greiða fyrir sjúkrakostnað.

Hvað viðkemur eldingunni segist Agan hafa staðið við eldhúsvask á heimili sínu og talað í símann þegar hann heyrði háan hvell og missti meðvitund. Þegar hann vaknaði stóðu yfir honum sjúkraliðar. Óveður gekk yfir svæðið þegar slysið varð. Dóttir hans stóð skammt frá og sá föðust sinn falla til jarðar.

Sérfræðingur sem dagblaðið St. Petersburg Times ræddi við segir ómögulegt að segja til um hvort Agan hafi orðið fyrir eldingu. Ekki sé á honum að sjá að hann hafi brennst en það eigi hvort eð er sjaldnast við þegar menn verða fyrir eldingu.

Allt er því enn á huldu hvort John Wade Agan sé óheppnasti maður veraldar.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is