Tate-listasafnið mun hýsa fyrstu yfirlitssýningu listamannsins Damien Hirst í Bretlandi. Sýningin mun standa yfir á sama tíma og Ólympíuleikarnir 2012, sem haldnir verða í London. Meðal verka á sýningunni verða eitt frægasta verk Hirst, dauður hákarl í formalíni frá 1991, og verk sem samanstendur af rotnandi kýrhaus, flugum og rafknúnum flugnabana.
Aðrar áhugaverðar sýningar eru fyrirhugaðar í Tate á meðan á Ólympíuleikunum stendur, m.a. sýning tileinkuð Edvard Munch og sýning sem skoðar áhrif Picasso á breska listamenn.