Gömul kona kippti Armenum af netinu

Ljósleiðari stækka

Ljósleiðari Mbl.is/Golli

Gömul kona í Georgíu á fangelsisdóm yfir höfði sér eftir að hún rauf allt netsamband í nágrannalandinu Armeníu. Armenar voru internetlausir klukkustundum saman þann 28. mars vegna skemmda á ljósleiðara sem liggja til landsins frá Georgíu.

Talsmaður innanríkisráðuneytis Georgíu skýrði frá því í dag að 75 ára gömul kona hefði viðurkennt að hafa tekið ljósleiðarann í sundur í leit sinni að verðmætum kopar til að selja, í þorpinu Ksani. Hún áttaði sig ekki á því að hún hafði grafið sig niður á stærsta ljósleiðara landsins, sem tengdu austurhluta Georgíu, Armeníu og Aserbaídsjan við internetið.

Konan hefur verið ákærð fyrir athæfið en í ljósi aldurs var henni sleppt lausri og fær að dvelja heima hjá sér meðan á rannsókn og síðar réttarhöldum stendur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Lét níu ára dóttur sína keyra

15:52 Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
21.2. Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

finnur.is