|
Monitor
| mbl
| 18.4.2011
| 9:59
| Uppfært
10:56
Lét hárið vaxa í 21 ár
Hin kínverska Jiang Aixiu frá Fushun í Henan héraði Kína fór síðast í klippingu árið 1990. Hár hennar er nú 3,6 metrar að lengd.
„Ég ætlaði að láta klippa það margoft en hárgreiðslumaðurinn minn hvatti mig til að safna hárinu áfram því það er svo sterkt,“ útskýrði Aixiu fyrir fjölmiðlum í Kína. Hún bjóst þó ekki við að hárið myndi vaxa svo hratt.
Á hverju ári hefur hár Aixiu vaxið um 20 sentímetra. Hún segir hárþvottinn taka mikinn tíma. „Ég er að minnsta kosti tvo tíma að þvo það allt.“
Læknar hafa nú ráðlagt henni að klippa hárið sem tekur víst mikla orku frá henni og gæti skaðað heilsu Aixiu á endanum. Hún ætlar því að láta það flakka á næstu dögum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









