Gleymdir þú sólarvörninni Nigella?
Matargyðjan Nigella Lawson er stödd í Sidney í Ástralíu um þessar mundir. Í gær skellti hún sér í sjóinn sem væri ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að hún fór í heilklæðnaði út í. Flestir baða sig í sjónum í baðfötum, en ekki Nigella. Hún klæddist síðum svörtum buxum og hettupeysu með munstri. Og til að setja punktinn yfir i-ið var hún með derhúfu á höfðinu.
Breski vefmiðillinn Daily Mail veltir því fyrir sér hvort hún hafi gleymt sólarvörninni heima og þess vegna farið út í sjó alklædd.
Nigella þykir vera ein kynþokkafyllsta kona Bretlands og er lítið fyrir að búa til súperholla rétti. Hún nær til beggja kynja þegar hún hrærir saman smjöri, rjóma og súkkulaði án þess að blikna. Hún er nefnilega þeirrar skoðunar að við eigum að leyfa okkur að borða það sem okkur langar í og njóta þess í botn á meðan á því stendur.
Þegar kemur að baðfötum er hún þó ekki alveg með puttana á púlsinum. Það má velta því fyrir sér hvort hana vanti ekki almennilegan stílista? HÉR er hægt að sjá fleiri myndir.










