Hvar er stílistinn þinn Nigella?
Nigella komst í fréttirnar í vikunni þegar hún baðaði sig við strendur Sydney í Ástralíu í alklæðnaði. Hún er ennþá stödd í borginni og var einmitt mynduð í svörtum mjög óklæðilegum kjól og í skrýtnum bandaskóm við.
Af kjólnum að dæma þarf Nigella Lawson mjög nauðsynlega á stílista að halda. Nigella er þekkt fyrir að vera ein þokkafyllsta kona Bretlands, en nú er eins og hún sé svolítið að stimpla sig út.
Kjóllinn hefði til dæmis farið mun betur á henni ef hún hefði verið í aðhaldssamfellu innan undir honum. Og svo hefði hún frekar átt að vera í flugfreyjuhælum við kjólinn. Þegar skór eru teknir saman við ökklann klippa þeir af fætinum sem gerir það að verkum að fótleggurinn virkar styttri. Þær sem eru ekki mjög hávaxnar ættu því að hafa þetta í huga.









