Veröld/Fólk
| AFP
| 23.4.2011
| 16:21
| Uppfært
16:45
Kate muni finna fyrir snobbinu
Meirihluti Breta telur að konunglega brúðkaupið sem fram fer 29. apríl muni styrkja stöðu konungdæmisins í Bretlandi. Margir telja hinsvegar að Kate Middleton muni líða fyrir snobb kóngafólksins og verði látin líða fyrir það að vera af almúgaættum.
Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem Daily Mail birtir í dag. Niðurstöðurnar sýna að 51% telja brúðkaupið styrkja konungdæmið og 57% telja að Middleton verði góð drottning, sem er 12% aukning frá því í nóvember. Brúðurin verðandi virðist því vinna á í almenningsálitinu.
32% segjast hinsvegar óviss um að sem almúgastúlku verði henni tekið sem jafningja inn í fjölskylduna. 45% segjast efast um að foreldrum hennar verði vel tekið af kóngafólkinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Setur Lopez alltaf í fyrsta sæti
- Starði á barm prinsessunnar
- Göltur ástfanginn af nauti
- Lohan þakklát dómaranum
- Búinn að skrifa bók um Whitney Houston
- Sjúk í súputeninga
-
Óprúttnir sambadansarar
- Skrifar sig frá sorginni
- Valgeir Guðjónsson í Vestmannaeyjum
- Sin Fang kemur fram í Undiröldunni
- Nemendur í kvikmyndagerð til Íslands








