Tengdadóttir tekin á teppið

Verðandi tengdadóttir fær heldur betur að heyra það. stækka

Verðandi tengdadóttir fær heldur betur að heyra það. Reuters

Tölvupóstur sem bresk kona sendi á verðandi tengdadóttur sína hefur vakið mikla athygli í netheimum. Í tölvupóstinum gagnrýnir hún unnustu sonar síns harkalega og segir hana óheflaða og kunni ekki almenna mannasiði. 

Carolyn Bourne lætur Heidi Withers heldur betur heyra það í bréfinu og telur Withers eiga margt ólært áður en hún kemur í fjölskylduna.

Withers, sem er 29 ára, er trúlofuð stjúpsyni Bourne, Freddie sem er einnig 29 ára að aldri. Brá henni svo við bréfið að hún sendi það áfram á nokkra vini.

En vinirnir sendu bréfið áfram og er það birt í einhverjum breskum fjölmiðlum.

Bourne, sem starfar við blómarækt, gagnrýnir Withers fyrir hegðun hennar er hún kom í heimsókn til fjölskyldunnar í Devon í apríl sl. Kvartar hún meðal annars yfir því hvað hún fer seint á fætur. Eins er Bourne ósátt við hvað brúðkaupið er dýrt.

The Sun er meðal þeirra fjölmiðla sem birta bréfið í heild


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
21.2. Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Orsök fjárhagsáhyggna fundin

Teikning af heila
21.2. Vísindamenn hafa uppgötvað að tiltekið efni í heilanum hefur þýðingarmikil áhrif á hvort fólk geti einfaldlega lagt sársauka vegna fjárhagslegra áfalla til hliðar eða ekki. Meira »

finnur.is