Nefnd eftir Harper Lee

David Beckham ásamt dóttur sinni, Harper Seven stækka

David Beckham ásamt dóttur sinni, Harper Seven Af Twittersíðu Victoriu Beckham


Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham útskýrir á Facebook síðu sinni hvaðan nafnið á nýfæddri dóttur hans og Victoriu kemur.  

Stúlkan sem hefur fengið nafnið Harper Seven heitir eftir rithöfundinum Harper Lee en hún er þekktust fyrir bók sína To Kill a Mockingbird.

Happatalan sjö

Að sögn Davids Beckham er bókin eftirlætisbók Victoriu enda stórkostleg bók. Hann segir að sá misskilningur virðist vera ríkjandi að Seven nafnið sé vísun í númerið á treyju hans hjá enska knattspyrnuliðinu Manchester United en það sé ekki eina skýringin og ekki sú veigamesta.

Aðalástæðan sé sú hveru táknræn talan sjö sé. Sjö undur heimsins og sjö litir regnbogans. Eins sé talan happatala í mörgum menningarheimum. 

„Við elskum nafnið og við elskum Harper Seven. Við erum hamingjusöm með að hún sé hluti af lífi okkar og fjölskyldu okkar. Þetta eru stórkostlegir tímar í fjölskyldu okkar," skrifar David Beckham á Facebook síðu sína.  

 Beckham hjónin hafa nýtt sér tæknina til að birta myndir af litlu stúlkunni og eru myndir af henni að finna á Twitter vef Victoriu og á Facebook síðu Beckham.   

Besta bók í heimi? 

Í grein sem Árni Matthíasson skrifaði í Morgunblaðið fyrir rúmu ári síðan, þegar 50 ár voru liðin frá útgáfu bókarinnar kemur fram að bókin hafi frá fyrsta degi selst vel og selst enn. Bókin kom út 11. júlí 1960 en Harper Seven Beckham fæddist þann 10. júlí 2011.

„Harper Lee var hálffertug þegar bókin kom út og er enn í fullu fjöri þó hún láti lítið á sér bera, hefur reyndar haldið sér utan sviðsljóssins alla tíð og þannig mun hún víst ekki taka þátt í neinum afmælisfagnaði vegna bókarinnar; hún er víst þeirrar skoðunar að rithöfundar eigi að halda sig til hlés og leyfa bókum sínum að vera í sviðsljósinu.

Líklegt verður að telja að margir, kannski flestir, þeirra sem þetta lesa hafi lesið bókina og eins líklegt að þeir hafi kunnað að meta hana enda er hún vel skrifuð, spennandi og felur í sér mikinn sannleik; sögurnar tvær í henni, annars vegar af upploginni nauðgun og réttahöldum vegna hennar og hinsvegar hvernig fordómar barnanna spegla fordóma hinna fullorðnu, eru hrífandi og átakanlegar í senn. Það kemur því ekki á óvart að bókin sé vinsæl, en kannski erfiðara að gera sér grein fyrir því af hverju hún er talin besta bandaríska skáldsaga allra tíma.

Samnefnd kvikmynd, sem fylgir bókinni býsna vel, varð líka gríðarlega vinsæl. Hún var frumsýnd 1962, ekki nema tveimur árum eftir að bókin kom út, og státaði af einni mestu kvikmyndastjörnu þess tíma, Gregory Peck. Myndin er jafnan talin með bestu myndum sögunnar vestanhafs; nægir að nefna að bandaríska kvikmyndaráðið taldi hana 25. bestu mynd sögunnar og bestu réttarsalsmyndina, aukinheldur sem söguhetjan Atticus Finch var valin besta kvikmyndahetja tuttugustu aldarinnar

Þegar betur er að gáð er því líklegt að kvikmyndin To Kill a Mockingbird hafi haft mikið að segja með vinsældir bókarinnar To Kill a Mockingbird án þess það þó dragi úr verðleika bókarinnar, hún er snilldarverk, ekki síður en myndin," skrifaði Árni Matthíasson um bókina í júlí í fyrra, 50 árum eftir útgáfu hennar.

 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

Hvað á litla prinsessan að heita?

Daníel Svíaprins sýnir hér stærð nýfæddrar dóttur sinnar á Karólínska sjúkrahúsinu í morgun.
08:50 Svíar eru þegar farnir að velta fyrir sér nafni á nýfæddu prinsessuna, en í nótt fæddist Viktoríu krónprinsessu og Daníel eiginmanni hennar dóttir. Sænski veðbankinn Paf telur mestar líkur á að hún muni fá nafnið Alicia. Meira »

Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman

Rihanna.
09:46 Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru. Meira »

Svíaprinsessa er fædd

Hjónin Viktoría og Daniel.
06:23 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur um klukkan hálf fimm í morgun. Litla stúlkan, sem síðar meir mun sitja á valdastóli í Svíþjóð, fæddist á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og var 51 sentímetrar og tæp 3,3 kíló. Faðirinn, Daníel Westling, segir móður og barni heilsast vel. Meira »

finnur.is