„Með sniðuga hatta í gúmmímussum; syngjum falskt og við frussum; ógeðslegir, en við höldum að við vöðum í tussum; fokkit, bæjarstjórinn er ekki einu sinni í buxum,“ rappar BlazRoca um Þjóðhátíð í Eyjum.
Í Eyjaútgáfu Monitor sem kom út í síðustu viku voru þeir
BlazRoca og Friðrik Dór fengnir til að búa til sérstakar Þjóðhátíðarútgáfur af
lögum úr þeirra smiðju. BlazRoca valdi að búa til Þjóðhátíðartexta við lagið
Allir eru að fá sér en þar eru lundareykingar og buxnalaus bæjarstjóri á meðal
yrkisefna. Textann í heild sinni, sem Erpur kallar „Heimaeyjarplaya-style“, má
finna í heild sinni í nýjasta tölublaði Monitor.
Blaðið má nálgast í rafrænni útgáfu hér.